Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

07.05.2024 - 07.05.2024

Ársþing HSV 2024

Ársþing Héraðssambands Vestfirðinga (HSV)...
27

Hádegisfundur 9. apríl bein útsending

09.04.2015Fimmtudaginn 9. apríl býður ÍSÍ til hádegisfundar þar sem kynntar verða niðurstöður tveggja meistaraverkefna frá Háskóla Íslands. Fundurinn verður haldinn í E-sal Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal og hefst kl.11:30. Margrét Indriðadóttir sjúkraþjálfari og MSc í íþróttafræði mun kynna niðurstöður meistaraverkefnis síns þar sem hún skoðaði íþróttameiðsli ungmenna, algengi og brottfall vegna meiðsla. Þá mun Hafdís Inga Hinriksdóttir félagsráðgjafi og meistaranemi fjalla um meistaraverkefni sitt en þar skoðaði hún upplifun foreldra afreksbarna á ofbeldi í íþróttum. Skráning er á skraning@isi.is og er aðgangur ókeypis.